Matching family tree profiles for Halldóra Víglundsdóttir
Immediate Family
-
husband
-
father
-
mother
About Halldóra Víglundsdóttir
Halldóra Víglundsdóttir fæddist í Björgvin á Eyrarbakka þann 8. apríl 1926 og lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Landakoti þann 30. mars síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Kristínar Guðmundsdóttur, f. 12.5. 1894, og Víglundar Þorsteins Jónssonar, f. 25.6. 1892. Halldóra átti einn bróður Stefán, f. 25.2. 1917, en hann lést á Vífilstöðum 11.1. 1947. Víglundur faðir þeirra lést er Halldóra var um árs gömul og ólust þau systkin upp hjá móður sinni og móðurafa Jóni Ásgrímssyni á Eyrarbakka. Eftir hefðbundna skólagöngu lærði Halldóra sauma hjá Guðfinnu Árnadóttur í Akri á Eyrarbakka og fór síðan í Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Halldóra giftist Jóni Guðmundssyni, sölumanni 7.5. 1948 en hann lést 16.3. 1975. Börn þeirra eru: Kristín, gift Óskari Guðjónssyni og eiga þau fjögur börn og þrjú barnabörn, Stefán Víglundur, giftur Þorgerði Gylfadóttur og eiga þau þrjú börn, Stefán á að auuki dóttur og dótturdóttur, Hólmfríður Salome, gift Ásgrími Stefánssyni og eiga þau 3 börn, Guðmundur og á hann 2 drengi. Halldóra vann við ræstingar hjá Tryggingastofnun ríkisins mestan hluta starfsævi sinnar. Útför Halldóru fór fram frá Fossvogskirkju 9. apríl.
Halldóra Víglundsdóttir's Timeline
1926 |
April 8, 1926
|
||
1996 |
March 30, 1996
Age 69
|