Immediate Family
-
Privatespouse
-
Privatestepchild
-
Privatestepchild
-
Privatestepchild
About Ragnheiður Jóhanna Eggertsdóttir
Ragnheiður Jóhanna Eggertsdóttir fæddist 15. ágúst 1956 á Kistu í Vesturhópi. Hún lést á Heilbrigðisstofun Vesturlands á Hvammstanga 4. janúar 2016. Útför Ragnheiðar fór fram frá Hvammstangakirkju 15. janúar 2016.
Foreldrar hennar voru Eggert Ágúst Konráðsson, f. 1920, d. 2008, og Jónína Selma Jónsdóttir, f. 1921, d. 1999. Systkini Ragnheiðar voru Konráð, f. 1952, Valdimar Ingi, f. 1959, og Agnes Magnúsdóttir, f. 1947.
Synir Ragnheiðar eru Eggert Már Stefánsson, f. 1980, eiginkona hans er Linda Dögg Hólm. Dóttir þeirra er Ragnhildur Freyja, f. 2004. Fyrir átti Linda Dögg, Óskar, f. 1996, og Anítu, f. 1998. Faðir Eggerts Más var Stefán Lárus Jónsson, f. 1955, d. 2011. Eyjólfur Unnarsson, f. 1987, unnusta hans er Þuríður Hermannsdóttir. Faðir hans er Unnar Atli Guðmundsson, f. 1955.
Hinn 15. ágúst 1993 giftist Ragnheiður Jóhannesi Erlendssyni, f. 1946. Foreldrar Jóhannesar voru Erlendur Sigurjónsson, f. 1911, d. 1988, og Helga Gísladóttir, f. 1919, d. 1987. Börn Jóhannesar eru Linda, f. 1968, eiginmaður hennar er Björgvin Ragnar Emilsson, þau eiga soninn Daníel, f. 1987. Rögnvaldur, f. 1970, eiginkona hans er Sigrún Eydís Garðarsdóttir. Börn þeirra eru Aníta, f. 1992, unnusti hennar er Ingi Rafn Ingason og eiga þau soninn Birki Rafn, f. 2014, Rakel Helga, f. 2001. Eva, f. 1978, eiginmaður hennar er Sveinn Gíslason, dætur þeirra eru Bergdís, f. 2006, og Andrea, f. 2009.
Ragnheiður ólst upp á Kistu og gekk í barnaskóla í Vesturhópi. Hún lauk tveimur deildum í unglingadeild á Hvammstanga. Ragnheiður starfaði lengst af sem starfsmaður Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og var hún virkur meðlimur í Kvenfélaginu Björk á Hvammstanga og var formaður félagsins í 9 ár.
Ragnheiður Jóhanna Eggertsdóttir's Timeline
1956 |
August 15, 1956
|
Kistu, Vesturhópi, Ísland (Iceland)
|
|
2016 |
January 4, 2016
Age 59
|
Heilbrigðisstofnun, Vesturlands, Hvammstanga, Ísland (Iceland)
|