Björn "ríki" Þorleifsson

public profile

Is your surname Þorleifsson?

Connect to 319 Þorleifsson profiles on Geni

Björn "ríki" Þorleifsson's Geni Profile

Share your family tree and photos with the people you know and love

  • Build your family tree online
  • Share photos and videos
  • Smart Matching™ technology
  • Free!

Björn „ríki“ Þorleifsson

Icelandic: Björn "ríki" Þorleifsson
Birthdate:
Birthplace: Skarð á Landi, Rangárvalla, Iceland
Death: 1467 (58-59)
á Rifi undir Jökli, veginn af Englendingum
Immediate Family:

Son of Þorleifur Árnason and Kristín "Vatnsfjarðar-Kristín" Björnsdóttir
Husband of Ólöf Loptsdóttir
Partner of NN Fylgikona (concubine/frille)
Father of Þuríður Björnsdóttir; Þóra Björnsdóttir; Þorleifur Björnsson and Sólveig Björnsdóttir
Brother of Helga "eldri" Þorleifsdóttir; Einar Þorleifsson; Helga "Yngri" Þorleifsdóttir; Sólveig Þorleifsdóttir and Guðný Þorleifsdóttir

Occupation: Hirðstjóri og bóndi á Skarði, Knight/Ridder/Riddari, Hirðstjóri og bóndi á Skarði á Skarðströnd, Hirðstjóri
Managed by: Private User
Last Updated:

About Björn "ríki" Þorleifsson

"Hirdstjori og bondi á Skardi. Naut mikillar virdingar hja konungi, enda prudur i framkomu og frækinn. Hans var oft getid vegna vasklegrar framgöngu vid yfirgang enskra kaupmanna og i einni slikri för var hann veginn i Rifi undir Jökli." (?)



Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir yfirlit yfir aðrar merkingar „Björn Þorleifsson“ Björn ríki Þorleifsson (um 1408–1467) var hirðstjóri, riddari og bóndi á Skarði á Skarðsströnd.

Björn var sonur Þorleifs Árnasonar sýslumanns á Auðbrekku í Hörgárdal, í Glaumbæ í Skagafirði og síðast í Vatnsfirði, og konu hans Vatnsfjarðar-Kristínar, dóttur Björns Jórsalafara Einarssonar. Kona hans var Ólöf ríka, dóttir Lofts Guttormssonar riddara, og voru þau auðugustu hjón á Íslandi.

Þegar biskupslaust var í Skálholti um miðja 15. öld eftir lát Goðsvins biskups, en Marcellus eftirmaður hans kom aldrei til landsins, gerðist Björn ásælinn í eigur stólsins og rændi þær og ruplaði. Kristján 1. Danakonungur, Hinrik erkibiskup í Niðarósi og Marcellus Skálholtsbiskup sendu harðorð bréf til landsins sumarið 1553 og hallmæltu mjög þeim sem rændu kirkjur eigum sínum. Fékk Gottskálk Hólabiskup umboð frá konungi til að reka Björn af eigum Skálholtsstóls og krefja hann reikningsskila, en bannfæra hann ella. Björn gerði þá sætt við biskup og virðist allt hafa fallið í ljúfa löð.

Um 1455 héldu Björn og Ólöf kona hans í utanför en lentu í hrakningum og við Orkneyjar réðust skoskir sjóræningjar á skipið, rændu hjónunum og fluttu þau til Skotlands. Kristján 1. Danakonungur greiddi lausnargjald fyrir þau og fóru þau síðan til Danmerkur og fengu góðar viðtökur. (Björn Þorsteinsson sagnfræðingur hefur raunar dregið sannleiksgildi þessarar sögu mjög í efa og getið þess til að hún kunni jafnvel að vera uppspuni sem Björn, konungur og Marcellus biskup hafi soðið saman af pólitískum ástæðum.)

Björn fékk þá riddaranafnbót, var gerður að hirðstjóra yfir öllu Íslandi og falið það hlutverk að hefta ólöglega verslun Englendinga á Íslandi. Þegar þau hjón komu heim hófu þau þegar að sinna þessu hlutverki, fóru um landið með sveina sína og ráku Englendinga burtu og gerðu fé þeirra upptækt. Árið 1467 sló í bardaga milli Björns og manna hans annars vegar og Englendinga frá Lynn hins vegar á Rifi á Snæfellsnesi, þar sem Englendingar höfðu verslun, og lauk honum þannig að Björn var drepinn ásamt nokkrum mönnum sínum en Þorleifur sonur þeirra hjóna tekinn til fanga. Ólöf keypti Þorleif lausan og er sögð hafa hefnt Björns grimmilega.

Börn þeirra Björns og Ólafar voru Þorleifur hirðstjóri, Árni, sem var hermaður í þjónustu Kristjáns 1. og féll í orrustunni við Brunkeberg í Svíþjóð 1471, Einar jungkæri á Skarði, sem dó erlendis 1493 og hafði átt að vera hirðstjóri, að því er segir í annálum, og Solveig húsfreyja á Skarði, kona Páls Jónssonar sýslumanns. Björn átti líka nokkur launbörn, þar á meðal Þóru móður Björns Guðnasonar í Ögri.

About Björn "ríki" Þorleifsson (Icelandic)

Björn „ríki“ Þorleifsson Fæddur 1408 Látinn 1467 Hirðstjóri og bóndi á Skarði á Skarðsströnd. Hlaut aðalstign 16.5.1457. Veginn á Rifi undir Jökli. Í Fitjaannál er honum einnig eignuð laundóttirin Herdís eða Helga en vafi þykir leika á tilvist hennar. Espólín segir hann ekki hefa gengist við Herdísi. Heimildir: Esp.4815, JÞ-ættatölur, Longætt.1487, Ann.I.58/II.24, Laxd.143, Jarðabréf, ÍÆ.I.212, DI.V.147

Ólöf Loftsdóttir um 1410 - 1479 Eiginkona Húsfreyja á Skarði.

view all

Björn "ríki" Þorleifsson's Timeline

1408
1408
Skarð á Landi, Rangárvalla, Iceland
1430
1430
Skarð á Landi, Rangárvalla, Iceland
1430
1435
1435
1450
1450
Skard, Iceland
1467
1467
Age 59
á Rifi undir Jökli, veginn af Englendingum
????
????